12.4.2007 | 14:00
Ekki henda gömlu reiðhjólum...
Fékk þetta í netpósti og langar að koma því á framfæri. Alveg bráðsniðug hugmynd hjá þeim
Gömul og ónýt reiðhjól óskast.
Lítill hópur ungs fólks ætlar í sumar að starfrækja verkstæði þar sem við munum taka gömul og lúin reiðhjól og breyta þeim, bæta eða búa til furðuhjól. Ef allt fer sem horfir verður þetta á vegum Hins hússins undir formerkjum "Skapandi sumarstarf" og verkstæðið verður opið öllu "ungu fólki" sem vill fá tækifæri til að laga bilað hjól eða búa til nýtt úr gömlum og fá aðstoð við það ef þarf.
Við leitum því að gömlum reiðhjólum sem stendur til að henda; ef þú átt eða veist af slíkum hjólum værum við þakklát ef þú létir okkur vita og við komum og sækjum hjólið heim. Og auðvitað líka reiðhjólaparta s.s. gjarðir, dekk og keðjur.
Einnig værum við þakklát fyrir gömul handklæði, sængurföt og annað sem hægt er að rífa niður í búta fyrir handþurrkur. Svo og annað eins og t.d. verkfæri sem okkur gæti nýst; restar af vélalakki og gamla samfestinga og vinnuskyrtur til að hlífa fötum.
Ef einhver veit af góðri rafsuðu sem stendur til að selja, vantar okkur slíka.
Við skemmtum okkur við að endurnýta.
Tengiliður er Viktor Orri Dietersson
netf.: kisan@centrum.is sorry ekki rétt netfang. Rétta netfangið er : raebbblarnir@gmail.com
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.