Prestar II

Halo Ítalskur kórdrengur fer í skriftarstól til að játa syndir sínar.

"Fyrirgefðu Faðir, en ég hef syndgað. Ég hef verið með lauslátri stúlku"

Presturinn spyr, "Er þetta þú, litli Johnny Parisi?

"Já Faðir, það er rétt"

"Og stúlkan sem þú varst með?"

"Ég get ekki sagt það Faðir. Ég vil ekki sverta orðspor hennar"

"Jæja, Johnny, ég held að ég eigi eftir að komast að því hver hún er, svo að það er alveg eins gott fyrir þig að segja mér það sjálfur núna. Var það Tina Minetti?"

"Ég get ekki svarað því"

"Var það Teresa Volpe?"

"Ég mun aldrei kjafta frá"

"Var það Nina Capelli?"

"Því miður, ég bara get ekki sagt þér það"

"Var það Cathy Piriano?"

"Varir mínar eru innsiglaðar"

"Var það Rosa De Angelo, nokkuð?"

"Í Guðs bænum Faðir, ég get ekki sagt þér það"

Presturinn andvarpar og er ekki sáttur. "Þú ert þagmælskur, Johnny Parisi og ég dáist að því. En þú hefur syndgað og verður að taka úr þína refsingu. Þú getur ekki verið kórdrendur hjá okkur næstu 4 mánuði, því miður. Farðu nú og hagaðu þér eins og ungum manni sæmir.

Johnny gengur til baka í kórstæðið sitt og vinur hans Nino vippar sér að honum og hvíslar. "Hvað fékkstu?"

"4 mánaða frí og fimm góðar vísbendingar" Devil


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband