Óbeisluð fegurð

Ég kann vel við húmorinn hjá þeim fyrir vestan. En á Ísafirði verður óhefðbundin fegurðarsamkeppni á morgun, 18.apríl 2007. Eins og segir á heimasíðu keppninnar þá verða keppendur að vera komnir af barnsaldir og vera sem upprunalegastir. Þá er átt við að hárígræðslur, brjóstastækkanir og aðrar lýtaaðgerðir geta útilokað fólk frá keppni. Það meira að segja telst keppendum til tekna ef lífið sést utan á þeim. Er þá átt við að aldur, aukakíló, hrukkur, slit vegna barnsfæðinga, lafandi brjóst, skalli, loðið bak, appelsínuhúð o.þ.h. teljast til kynþokka. Tekið sérstaklega fram að keppendur þurfa hvorki að grenna sig né þyngja til að geta tekið þátt.  Það eru nokkrir titlar sem fólk keppir að. Sem dæmi er það:

  • Óbeisluð fegurð 2007
  • Michelin 2007
  • Húðslit 2007
  • Persónuleiki Íslands 2007
  • Útlendingur 2007
  • Orginal 2007
  • Kjarkur 2007
  • Hr. Nói 2007
  • Fr. Góa 2007
  • ofl. ofl.

Þetta er alveg frábært framtak hjá þeim og ekki spurning að svona sprell setur skemmtilega svip og stemmingu á bæjarfélagið. Kíkið á linkinn þeirra.

http://obeislud.it.is/

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband