23.10.2007 | 16:22
Kunnuglegt?
Það var kvöld eitt að hjónin höfðu lagst til hvílu fyrir nóttina að konan varð vör við að eiginmaðurinn snerti hana á mjög óvenjulegan hátt.Fyrst renndi hann hendinni yfir axlirnar á henni og efri hluta baksins.Síðan renndi hann hendinni mjög létt yfir brjóst hennar .Þá hélt höndin varlega niður með síðunni og yfir magann og síðan niður með síðunni hinu megin niður að mitti.Hann þuklaði síðan mjöðm hennar fyrst öðru megin og síðan hinu megin. Hönd hans fór síðan niður eftir lærunum utan verðum.Hönd hans strauk síðan vinstra lærið varlega að innanverðu og eins við hægra lærið.Þegar þarna var komið var hjartsláttur konunnar orðinn örari og hún titraði aðeins og hagræddi sér í rúminu.Þá hætti maðurinn skyndilega og sneri sér yfir á hina hliðina í rúminu og kveikti á sjónvarpinu."Af hverju ertu hættur" hvíslaði konan.
Hann hvíslaði til baka " Ég er búinn að finna fjarstýringuna"!!
Þessi saga ætti kannski að kenna okkur eitt! Hvernig væri að fela fjarstýringuna, t.d. undir rúmi og láta þá leita vel og lengi? Hihihihihi
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.