29.10.2007 | 10:10
Vandamálatréð
Hér er falleg saga. Svona tré ættu allir að eiga!!!
Smiðurinn sem ég réð til að hjálpa mér að gera upp gamalt sveitabýli, hafið nýlokið erfiðum fyrsta degi í vinunni. Hann var klukkutíma of seinn í vinnuna vegna þess að það sprakk dekk á bílnum, rafmagnssögin hans gafst upp og nú neitaði forni pallbílinn hans að fara í gang. Meðan ég kerði hann heim, sat hann við hlið mér í steingerfðri þögn.
Þegar við vorum komnir, bauð hann mér inn til að hitta fjölskylduna. Þar sem við gengum að útidyrunum, stoppaði hann stuttlega við lítið tré og snerti trjágreinarnar með báðum höndum.Eftir að hann opnaði hurðina, varð á honum undursamleg breyting. Sólbrúnt andlit hans rifnaði í brosi og hann faðmaði börnin sín tvö og kyssti konuna sína. Seinna gekk hann með mér að bílnum mínum. Við gengum framhjá trénu og forvitnin náði tökum á mér.
Ég spurði hann um það sem ég hafði séð hann gera fyrr um kvöldið. "Æ, þetta er vandamálatréð mitt," svaraði hann. "Ég veit að ég kemst ekki hjá vandamálum í vinnunni, en það er eitt sem víst er, að þau eiga ekki heima á heimili mínu hjá konu minni og börnum.
Þannig að ég hengi þau á tréð þegar ég kem heim á kvöldin. Síðan tek ég þau aftur af trénu á morgnana." "Það skrýtna er," sagði hann og brosti, "að þegar ég kem út á morgnana og tek þau upp, þá eru þau ekki næstum eins mörg og mig minnti að ég hefði hengt upp kvöldið áður."
p.s. þið sem búið ekki svo vel að eiga tré fyrir þetta hlutverk, getið auðvitað komið í Garðheima og keypt ykkur fallegt tré og málið leyst!
Athugasemdir
p.p.s ég gleymdi að nefna að auðvitað er svo hægt að skeyta þetta fallega vandamálatré með eitthvað að þessu geggjuðu seríum sem eru komin í Garðheima
Anna Viðarsdóttir, 29.10.2007 kl. 15:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.