Góóóður

Eldri kona kom til heimilislæknis, sem hún hafði þekkt í áratugi, og var áhyggjufull.
“Maðurinn minn hefur greinilega minni kynorku en hann hafði.”
“Nú, jæja og hvað er bóndinn þinn gamall?”
“Sjötíu og fimm.”
“Nú, já. Það er nú ef til vill ekki von á öðru fyrir mann á hans aldri. Hvenær veittir þú því annars athygli að karlinn væri farinn að slappast?” spurði læknirinn.
“Í gærkvöldi og svo aftur í morgun.” sagði konan.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband