Hvernig létta eldri borgarar sér lífið?

Almenningur veltir því stundum fyrir sér hvað eldri borgarar geri sér til dægrarstyggingar. 

eldriborgarar

Hér er saga þessara hjóna :

Um daginn fórum við hjónin til dæmis niður í bæ og versluðum lítið eitt. Við vorum ekki nema 5 mínútur inni í búðinni.  Svo þegar við komum út, var lögregluþjónn að skrifa sektarmiða.

Við gengum rakleitt til hans og ég spurði hvort hann væri ekki til í að gefa eldri borgurum landsins smá séns? Hann lét sem hann sæi okkur ekki og hélt áfram að skrifa sektarmiðann, rétt eins og við værum ekki til.

Ég kallaði hann Nasistalöggu, möppudýr, fant og fúlmenni. Hann rétt leit til mín, greinilega öskureiður og skrifaði svo annan sektarmiða, því bíllinn var á of slitnum dekkjum.

Þá kallaði konan mín hann öllum illum nöfnum, svo sem skíthaus, hálfvita, sauðnaut og valdhrokagikk. Hann klárði að skrifa seinni miðann og bætti honum undir rúðuþukkuna. Svo tók hann til við að skrifa þriðja sektarmiðann, því bíllinn var óskoðaður. Svona leið næsta korterið . Við úthúðuðum lögreglumanninum og hann nánast fjölritaði sektarmiðana og stakk þeim þegjandi og hljóðalaust undir rúðuþurrkuna, en fjári var hann orðinn rauður í framan.

Okkur var svo sem slétt sama. Við erum löngu hætt að keyra bíl, komum með strætó í bæinn, en við grípum hvert tækifæri sem gefst til að skemmta okkur svolítð. Það er svo mikilvægt fyrir fólk á okkar aldri!

                     hehehe... Devil Svei mér þá, ég er farin hlakka til þess að komast á eftirlaun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Viðarsdóttir

Ég er strax farin að hugsa hugmyndir.

Ein er t.d. að láta bílana nema staðar fyrir mig við gangbraut. Ganga svo eins hægt og ég get yfir gangbrautina vitandi að þeir eru alveg að deyja úr pirringi yfir þessu gamalmenni. Svo þegar að það er ca. meter í kantinn, stökkva upp á gangstétt og skokka létt eftir gangstéttinni og gefa þeim langt nef. Hahahahahahaha... oh ég get ekki beðið.

Anna Viðarsdóttir, 21.11.2008 kl. 10:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband