Eru börn ekki yndisleg?

barn hér er ein góð saga...

Mamma var ekki heima og pabbi var að passa mig. Ég var ekki nema eins og hálfs árs gömul.
Einhver hafði gefið mér tesett sem var eitt af uppáhalds leikföngunum mínum.
Pabbi sat inni í stofu í öðrum heimi við að lesa dagblöðin og bróðir minn var að dunda sér í rólegheitum.

Ég færði pabba te sem auðvitað var bara vatn. Eftir fjöldann allan af tebollum og helling af hrósi frá pabba þá kom mamma heim.
Pabbi sagði henni að bíða og kíkja og sjá hvað þetta væri sætt að sjá mig færa honum te, ég væri bara algjört krútt.

Mamma beið og horfði þegar ég kom enn eina ferðina með tebolla handa pabba. Hún horfði á hann drekka teið og þegar hann hafði klárað úr bollanum varð henni á orði:
Gerir þú þér grein fyrir að eini staðurinn sem þetta litla barn getur komist í vatn er beint út klósettinu?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband