Snilld

Kona nokkur gekk niður Laugaveginn, þegar hún tók eftir mjög skítugri og illa til haldinni heimilislausri konu sem sat og betlaði peninga.Konan tók upp veskið , tók úr því 5000 kr. og spurði: Ef ég gef þér pening, ætlar þú þá að kaupa vín í staðinn fyrir mat?Nei, ertu frá þér, ég hætti að drekka fyrir mörgum árum, svaraði heimilislausa konan.Muntu þá nota peningana til að kaupa þér tískufatnað af einhverju tagi?Uss nei, ég hef ekki tíma til þess, nota alla mína orku í að halda í líftóruna.Ætlar þú þá að nota peningana á hárgreiðslustofu í stað þess að kaupa mat?Ertu frá þer, svaraði heimilislausa konan, ég hef ekki farið á snyrti- eða hárgreiðslustofu í 20
ár.OK svaraði þá hin konan. Ég ætla ekki að gefa þér þessa peninga.  Í staðinn ætla ég að bjóða þér út að borða með mér og manninum mínum í kvöld.Heimilislausa konan varð álfsjokkeruð og sagði: En verður maðurinn þinn ekki bálreiður ef þú gerir það?Þá svaraði hin:  það er í fínu lagi. Það er mikilvægt að hann sjái og skilji hvernig kona lítur út sem ekki notar fjármuni í tískufatnað, hárgreiðslu og vín.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Áslaug Kristinsdóttir

Áslaug Kristinsdóttir, 20.1.2009 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband