12.10.2007 | 13:37
Hin rétta friðarsúla
Ég skil ekki hvernig ég gat ruglast svona á tveimur ólíkum súlum. Í millitíðinni hélt ég reyndar að það væri verið að færa Goldfinger út í Viðey til að friðast við Kópavogsbúa og Gunnar Birgisson. En svo komst ég að því að ljósið sem skín svo flott út í Viðey er þessi umtalaða Friðarsúla. Ég verð að játa að mér finnst þetta flott. Minnir ögn á Batman að sjá svona ljósgeisla upp í háloftunum. Vantar bara merki Batmans efst í geislanum. Biðst hér með afsökunar á ruglinu í mér í gær. Hehehe
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2007 | 22:24
Nýr borgarstjóri
Ég hef nú ekki haft það til siðs að vera með stjórnmálaumræður hér á bloggbullinu mínu, en ég get ekki orða bundist og verð að óska reykvíkingum til hamingju með... ekki endilega nýja borgarstjórann, heldur að vera laus við Villa Vill. Ég sé reyndar alltaf eftir Þórólfi Árnasyni. Get seint fyrirgefið olíufurstunum fyrir að gera hann að blóraböggli og sitja sjálfir í skugganum og láta sem þetta komi þeim ekki við.
En ég rakst á einn bloggara sem kom með ágætis upptalningu um Villa Vill. Kíkið á það hér .
Bloggar | Breytt 12.10.2007 kl. 13:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2007 | 11:53
Friðarsúlan
Friðarsúla afhjúpuð í Viðey
Starfsmenn lögreglustjóraembættisins í Reykjavík, með aðstoð Landhelgisgæslunnar og Björgunarsveitarinnar Þvermóðs í Grafarvogi, afhjúpuðu nú fyrir stundu friðarsúlu í Viðey.
Friðarsúlan, sem er af ætt bláfættra súlna, hafði farið huldu höfði í eynni í nokkurn tíma. Slíkar súlur halda sig alla jafna ekki hér við strendur og var því talin mikil hætta á að hún myndi valda alvarlegu fjaðrafoki meðal friðardúfna jafnt sem pólitískra hauka
Friðarsúlan var gæf, en henni verður engu að síður vísað úr landi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2007 | 14:59
Skyldi maður vera orðinn gamall...
....ég las þetta alla vega og brosti Góða skemmtun!
Á þessu herrans ári 2007 eru löglega taldir sem fullorðnir einstaklingar á Íslandi allir þeir sem fæddust árið 1989.
-Þegar þau fæddust kunnir þú að skrifa, lesa, leggja saman, draga frá og hluta af margföldunartöflunni.
-Þau muna sama og ekkert eftir Reagan-tímabilinu og fréttu aldrei af því þegar reynt var að drepa hann.
-Þau muna heldur ekki eftir leiðtogafundinum sem haldinn var í Höfða og vita fátt um Gorbatsjoff.
-Þau voru ekki kynþroska þegar Persaflóastríðið hófst.
-Fyrir þeim hefur sami páfinn verið í Vatikaninu síðan þau fæddust.
-Þau sungu aldrei "We are the world, we are the children".
-Þau voru 5 ára þegar Sovétríkin féllu. Þau muna fátt eftir kalda stríðinu og síður eftir Austur- og Vestur-Þýskalandi, þó svo að þau hafi heyrt afþeim í sögutímum.
-Þau eru of ung til þess að muna eftir því þegar Challenger-geimflaugin sprakk og munu sennilega aldrei vita hvað Pepsi-áskorunin var.
-Fyrir þeim hefur AIDS verið til alla ævi.
-Þau éku sér aldrei með ATARI-tölvuleiki, geisladiskurinn kom á markaðinn 2 árum áður en þau fæddust, þau hafa aldrei átt plötuspilara og hafa sennilega aldrei leikið sér með Pac-man.
-Þegar talað er um BETA-vídeóspólur hafa þau ekki hugmynd.
-Star Wars og Súperman finnast þeim frekar slappar myndir og tæknibrellurnar ömurlegar.
-Mörg þeirra hafa ekki hugmynd um að einu sinni var ekkert til nema Ríkissjónvarpið sem fór í frí á fimmtudögum og í júlí.
-Þau muna heldur ekki eftir því þegar Rás 2 var eina rásin í útvarpinu fyrir utan Rás 1, og sú eina sem spilaði annað en klassíska tónlist.
-Þau hafa áreiðanlega aldrei hlustað á útvarpssögur eða Lög unga fólksins eða Óskalög sjúklinga og sjómanna og Bessi Bjarnason hefur aldrei verið ungur.
-Fá hafa séð svart-hvítt sjónvarp og þeim finnst fáránlegt að þurfa að hækka og lækka og skipta um stöð án þess að hafa fjarstýringu.
-Þau fæddust ári eftir að Sony hóf sölu á vasadiskóum og fyrir þeim hafa hjólaskautar alltaf verið línuskautar.
-Þeim hefur alltaf þótt farsímar og PC tölvur vera óskaplega eðlilegir hlutir, ekkert nýtt.
-Þau hafa ólíklega séð Húsið á sléttunni, Þórð húsvörð í Stundinni okkar og Einu sinni var.
-Þau hugsa aldrei um "Jaws" þegar þau fara í sjóinn, Michael Jackson hefur alltaf verið hvítur...og hvernig er mögulegt að John Travolta hafi einhverntíman dansað, svona feitur maður! Olivia Newton-John? HVER??!!
-Þeim finnst lítið fyndið að vitna í Með allt á hreinu, Nýtt líf og Stellu í orlofi.
-Þau muna ekki hverjir Þorgeir Ástvaldsson, Geiri Sæm og Herbert Guðmundsson eru.
-Nafnið Hemmi Gunn segir heldur ekki margt.
-Madonna hefur alltaf verið fræg og nöfn eins og Duran Duran, Wham, Culture Club, Thompson Twins, Tears for Fears, Rickshaw, Limahl, Terence Trent D´Arby, Talking heads og Modern Talking hljóma ekki kunnuglega.
-Þau muna ekki eftir BMX-hjóla tímabilinu og break-dance tímabilinu.
-Þau hafa ekki hugmynd um hvað Millet-úlpur og Don Cano voru merkileg fyrirbæri.
-Þau vita sennilega ekki að strætó var einusinni grænn og að tíkallar og fimmtíukallar voru seðlar. Þau hafa aldrei keypt fimmaurakúlur og muna ekkert eftir því að hafa notað
aura
-Þau vita ekki hvað Karnabær var og hafa aldrei séð Tommaborgara sem merkilegt fyrirbæri.
-Þau hafa alltaf getað pantað mat heim og alltaf verið vön tilveru kreditkorta.
Munið kæru vinir að þetta fólk er unga fólkið í dag.Merki þess að þú ert farin/n að eldast:
1. Þegar þú lest þennan texta og brosir.; )
2. Þegar þú stundar íþróttir og lætur alla vita með miklu stolti.
3. Þegar þú geymir bækur, vatnsglas og vaselín á náttborðinu.
4. Þegar fyllerí og kelerí eru ekki lengur umræðuefni.
5. Þegar börn tala við þig eins og þú talaðir við "fullorðna fólkið" fyrir stuttu.
6. Þegar "fullorðna fólkið" talar við þig eins og jafnaldra.
7. Þegar þú þarft meira hálfan dag til þess að jafna þig eftir vökunótt.
8. Þegar vinir þínir eru allir giftir.
9. Þegar litla frændfólkið þitt er farið að sníkja sígarettur eða áfengi.
10.Þegar litla frændfólkið þitt veit meira um tölvur en þú.
11.Þegar þú getur farið á ströndina og eytt heilum degi án þess að fara í sjóinn.
12.Þegar þú stundar líkamsrækt í fötum sem fela líkamann í stað þess að sýna hann.
13.Þegar þú vilt frekar hitta vini þína í stað þess að kjafta klukkutímum saman í símann.
14.Þegar þú veist hvað þú vilt.
15.Þegar þér líst betur á afslöppunarkvöld en partýkvöld.
16.Þegar þú horfir á fréttir og Kastljós og hefur virkilega áhuga.
17.Þegar þú lest Moggann í heilu lagi og hefur skoðun á næstum öllu.
18.Þegar þú ert aldrei spurð/ur um skilríki.
19.Þegar þú og vinir þínir eruð farin að finna grá hár.
20.Þegar þú ákveður að sýna þennan lista, vinum sem hafa áreiðanlega gaman að því.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.9.2007 | 13:10
Bæ bæ Goðheimar!
Yeesss! Búin að selja Goðheima. Mér fannst þessi tæpi hálfi mánuður alveg ótrúlega lengi að líða. Fullt af fólki að skoða hjá mér og loksins eitt tilboð. Ákváðum að taka því. Enda finnst mér skratti gott að fá tæpar 25millur fyrir íbúð sem ég keypt fyrir þremur árum síðan á 16,5. Það er nokkuð góð fjármögnun, er það ekki?
Jæja, nú getur mín farið að setja niður í kassa og flokkað hvað á að eiga, hvað á að henda og hvað ætla ég að selja í Kolaportinu
Þetta er og verður bara gaman og ekkert annað! Nægur tími, þarf ekki að afhenda Goðheimana nærri strax. Síðasta lagi 1.des. Bara brilliant!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.9.2007 | 16:22
Prjónakaffi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2007 | 17:53
Hvaða vinnuveitandi er þetta?
Hvernig væri að vinna hjá vinnuveitanda sem er með rétt um 500 starfsmenn þar sem:
- 29 hafa verið ásakaðir um heimilisofbeldi
- 7 hafa verið dæmdir fyrir skjalafölsun
- 19 hafa verið dæmdir fyrir að gefa út innistæðulausa tékka
- 117 hafa sett 2 eða fleirri fyrirtæki á hausinn
- 3 hafa setið inni vegna líkamsárásar
- 71 geta ekki fengið kredikort vegna stöðu sinnar hjá Lánstraust
- 14 hafa verið handteknir vegna vörslu eiturlyfja
- 8 hafa verið handteknir vegna búðaþjófnaðar
- 21 eru núna að verja sig fyrir dómstólum í hinum ýmsu málum
- 84 hafa verið teknir fyrir ölvunarakstur á síðasta ári
Getið þið áttað ykkur á hvaða vinnuveitandi þetta er ?????
Niður
.
.
.
.
.
.
.
Þetta er Þjóðþing Bandaríkjanna the United States Congress
Þá segi ég nú bara "Það er gott að vinna í Garðheimum"
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2007 | 20:48
Ýsa í humarsósu!
Ég luma á uppskrift af alveg ótrúlega einföldum og góðum fiskirétti í ofni. Þetta er svona ekta fyrir fólk eins og mig sem er með eldhúsfóbíu.
2 ýsuflök - meðalstór
rækjur - góður slatti
sveppir - niðursoðnir / ferskir... skiptir ekki máli
1 dós humarsúpa - má líka nota krabbasúpu
100 gr óðalsostur - rifinn niður
1 dl rjómi - rissessa eins og ég nota létt sýðran rjóma
örlítið salt - pipar eða season all
örlítið af sósujafnara
Ýsuflökin skorin í bita og lögð í ofnfast fat. Örlitlun salti og pipar stráð yfir. Súpan sett í pott. Rækjur, sveppir og osturinn rifinn út í súpuna. Hitað, rjóminn látinn út í og þykkt aðeins með sósujafnara. Hellt yfir fiskinn og bakað í ofni ca 30mín við 200°C.
Verði ykkur að góðu!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2007 | 16:33
Púkar á Patró?
Hitti hana Öldu vinkonu mína á laugardaginn. Hún sagði mér frá mjög svo skemmtilegu atviki. Þannig var að þegar að Patreksfirðingar fóru á stjá á föstudagsmorguninn þá var búið að setja skilaboð undir rúðuþurrkublöðin á öllum bílunum á Patró. Ekkert um hvað væri í gangi eða nein skýring um hver væri á ferðinni og hvers vegna. Skilaboðin voru á ýmsan máta og tengdust lífinu og dásemi þess. Síðan var skreytt með hjarta. Fréttin komst á netið og birtist fyrst á Vesturbyggð svo var það komið á Bæjarins Besta og loks á mbl.is
Gaman að þessu, sérstaklega þegar að þetta er nafnlaust ...og engin skýring.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)