Færsluflokkur: Bloggar
13.12.2008 | 23:04
Jólastemmingin
Rússneskt jólaglögg
1 líter vodka
1 rúsína.
Skreytt með greni.
-----------------------------------------------------
Svo syngja allir:
Skín í væna vínflösku,
og huggulega bjóra,
jólaglögg og eplasnafs
allt það ætl´að þjóra.
Dufla og daðra og leika mér
látum illa í desember
burt með sokk og skó
hér af víni er nóg.
Ó, hvað ég elska jólin,
von´eg hitti á stólinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2008 | 14:35
Búin að finna jólagjöfina handa karlinum mínum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.12.2008 | 15:35
Eru börn ekki yndisleg?
Mamma var ekki heima og pabbi var að passa mig. Ég var ekki nema eins og hálfs árs gömul.
Einhver hafði gefið mér tesett sem var eitt af uppáhalds leikföngunum mínum.
Pabbi sat inni í stofu í öðrum heimi við að lesa dagblöðin og bróðir minn var að dunda sér í rólegheitum.
Ég færði pabba te sem auðvitað var bara vatn. Eftir fjöldann allan af tebollum og helling af hrósi frá pabba þá kom mamma heim.
Pabbi sagði henni að bíða og kíkja og sjá hvað þetta væri sætt að sjá mig færa honum te, ég væri bara algjört krútt.
Mamma beið og horfði þegar ég kom enn eina ferðina með tebolla handa pabba. Hún horfði á hann drekka teið og þegar hann hafði klárað úr bollanum varð henni á orði:
Gerir þú þér grein fyrir að eini staðurinn sem þetta litla barn getur komist í vatn er beint út klósettinu?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2008 | 22:19
Skrípó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2008 | 22:04
Alltaf að skoða heimavinuna...
Hahahahaha! Þetta er alveg snilld
Þetta sýnir manni að foreldrar þurfa alltaf að fara yfir heimavinnu barnanna sinna (lesa alla leið niður)
sko... mamman vinnur í "Home Depot" (Byko / Húsasmiðjan) í Bandaríkjunum og hún er að selja skóflu á myndinni.
(það var allavega hugmyndin hjá barninu)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.12.2008 | 19:58
Eigðu góðan dag
Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður
vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður
ég vel að kúra um stund og staðnæmast við það
hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að.
Ég ákveð því að velja að vandamálin fá
vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá
tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti
ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti.
Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur
faðma þennan morgun og allar hans rætur
hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt
kex smyr með osti í blöðin svo ég lít.
Að endingu ég segi við þig sem þetta lest
þetta er góður dagur, hafðu það sem best
ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni
ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.
Höf: ókunnur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2008 | 15:24
Í tilefni nýrra notkunamöguleika á pipar:
lítill löggumaður tekur:
Fyrst af öllu piparúðann
og hann ýtir fast á staut.
Þá má heyra ýmsa æpa,
aðrir hvítna eins og næpa.
Sumir nudda æstir augun,
æða grátandi á braut.
Þegar öllu þessu er lokið
lítill löggumaður segir:
Þetta er ansi góður úði,
allt er hyskið farið brott.
Inni í klefa á ég bjána,
einn með gulan bónusfána
Og með svona piparúða
gengur police-vinnan flott.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)